~ Sjöbba Ingimakk ~

*Hin Eina Sanna*

06.02.2009 16:57:43 / hrefnaj

Fortíð nútíð og allt þar á milli

Bráðum kemur sá tími að ég mun takast á við fortíð mína.. eða hvað? Eða er hún kannski búin að hreiðra sig fyrir í nútíð minni? Kannski....

En annars.....

Maður minnist þann tíma er maður var vitlaus, saklaus og ung... Öll mistökin voru þau mistök eða voru þau eitthvað sem hafa gert mann að betri manneskju?

Ég kenndi sjálfri mér oft um mistökin og um það sem fór á rangan veg en hef svo áttað mig á því að ég átti ekki að gera það því mistökin og allt það hafa fært mig á réttari braut.. hvar væri ég ef þessi mistök hefðu ekki átt sér stað.. væri líf mitt betra... nei.... ég held ekki.. ég væri eflaust föst í vef sem ég kæmist ekki útúr...

Þess vegna á maður að segja takk! Takk við alla sem hafa fokkað hlutunum í kringum sig, takk fyrir að láta þessi mistök eiga sér stað því þetta hefur fært mig á betri stað í lífinu.

Takk fyrir að veita mér þá manneskju sem ég er í dag!

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2009 13:48:16 / hrefnaj

Hef ég verið það upptekin að ég hef misst af lífinu um stund?

Fyrir nokkrum vikum síðan var mér sagt upp, vegna þess að staðurinn sem ég var að vinna á var lokað, ég tók, og er enn að taka , minn mánaða uppsagnafrest. Er þetta í fyrsta skiptið síðan ég man eftir mér að ég hef fengið svona langt "frí" og þarf ekki að gera neitt... Til að byrja með var ég alveg að fríka út og vildi helst fara strax að vinna en eg hélt aftur af mér og leyfði sjálfri mér að vera í fríi.

Þessi tími er búin að vera svo æðislegur því ég hef fengið nýja sýn á lífið og loksins haft tíma til að gera hluti sem ég áður hafði engan tíma til.... og ég elska það!

Að þurfa ekki að flýta mér að finna stæði niðrí miðbæ.
Að eiga nógan tíma til að fá skiptimynt fyrir stöðumælirinn og fá ekki sekt.
Að geta stoppað við í bókabúð og gluggað í bækur og tímarit og gleymt mér um góða stund.
Að geta farið á kaffihús og fengið mér kaffi og farið í tölvunna.
Að geta kíkt í búðir og skoðað án þess að kaupa eitthvað, heldur bara skoða því ég hef tíma til þess.
Að geta sofið einu sinni í viku fram eftir mmmm..... (Leyfi mér bara 1x í viku annars verð ég of löt)
Að geta bakað.
Að geta eldað.
Að getað dúllað mér heima og tekið til án þess að þurfa að vera að taka til í fleiri tíma.
Að geta dagdreymt um brúðkaupið og lagt drög að undirbúningi. (Búin að bóka prest og sal!)
Að geta búið um rúmmið sitt.. já ég hafði sko aldrei tíma til þess!
Að geta átt sér áhugamál.
Að geta hitt vini sína án þess vera dauð af þreytu.
Að geta hitt gamla vini sem maður hafði áður ekki tíma til að vera í sambandi við.
Að geta fengið sér í glas og drukkið fram undir morgun.
Að geta haft tíma til að elska maka minn og uppgvötað aftur hvað það er æðislegt að vera ástfanginn og eiga þennan eina sérstaka.
Að geta lifað lífinu en ekki fljóta með því.

Ég hef komist loksins á ný að það eru ekki penningar og vinnan sem skipta miklu máli.. heldur lífið sjálft og þú sért ánægð(ur). Ég er búin að heita sjálfri mér það að vinna aldrei yfir mig og gleyma ekki lífinu, vinunum, ástinni og öllu því sem fylgir með. Ég mæli með því að þú gerir hið sama.

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 01:49:45 / hrefnaj

Áttavilt

Jájá búin að vera rosal duhh'leg að taka Áttavilt í gegn... Búin að breyta miklu.. svo sem... og byrjuð að blogga þar... vííí

Þessi síða mun alltaf vera mér kær og hef ég ákveðið að viðhalda henni aðeins :)

En einnig búin að ákveða að læsa henni...

Mjög djúpt blogg þar á ferð..! Ohh bojj! Þetta verður offical bloggið mitt en Áttavilt svona aðeins meira hugsunarblogg.. skiljiði? ;)

En ef þið viljið fá aðgang þá er bara að biðja mig um lykilorðið :)

www.blog.central.is/attavilt

- Hefur fengið nýjan tilgang -


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.10.2006 22:09:01 / hrefnaj

Nýtt Útlit

En ekki hvað... Mér finnst þetta voðaaa kósýý.. Ég held að ég sé ekkert á leiðinni að flytja mig í burtu..!

Hvað er að frétta... hmmm...

Búin að vera í þessu yndislega haustfríi... Reyndar ekki búin að læra eins mikið og ég ætlaði mér að gera... Enn! Við stelpurnar misstum okkur í gær í allsherja framkvæmdum... Vorum að festa hillur í gær, taka baðherbergið í gegn, klára mála ganginn og ég veit ekki hvað og hvað.... :D Geggt duhh'leg...!

Ekki búin að drekka neitt um helgina... Reyndar samt fór ég á Gaukinn á fimmtudagskvöld þá aðallega til að sjá Lay Low... Hún er svo mikið yndi! Fékk mér 2 bjóra og bara kósý-heit... Diskurinn hennar kemur út 19.október og ætla ég að festa mér kaup á honum :)

Jájá svoo sló ég sölumet á fimmtudaginn... alveg að brillera í að bóka heimsóknir... og þénaði vel yfir 4000 kall á klukkutímann.... Ekki slæmt.. ;)

En já er núna bara heima í chjillii... Búin að byrgja mig upp með snakki, saltstöngum, ídýfum og svo er kippa af Kalla Frænda í ískápnum... Víííjjjj.. ;)

En já eitt að lokum..!! Hver vill koma í bíó :D :D Ég er alveg veik fyrir mörgum myndum sem eru núna í bíó.. þar á meðal...

  • World Trade Center
  • Beerfest
  • Jackass - Number Two
  • John Tucker Must Die
  • Mýrin [ Kemur í Bíó 20.10 ]
  • Borat [ Kemur í Bíó 3.11 ]
  • The Last Kiss [ Kemur í Bíó 10.11 ]

Þannig nú er bara um að gera fyrir ykkur að rífast um að fá mig með ykkur í bíó.. ;)

Úúúú.. ég er að verða bíósjúkkkk.... 8|


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 03:20:10 / hrefnaj

Víííí...

Betri tímar framundan!! :D

Var frekar down í gær og í morgun.. Allt var svo erfitt og ég veit ekki hvað... og ég áttaði mig ekkert á því að kraftaverk gerast enn...!

Mætti í vinnuna.. Nennti ekki að eyða deginum mínum í að redda mér fríi! Nema hvað... þegar ég er að klæða mig í skyrtuna kemur eigandinn og spyr mig hvort ég sé ekki enn föst á þeirri ákvörðun að hætta.. og ég svara um leið jújú... og þá spyr hann mig hvenær viltu hætta.... Whuuuuttt?? Hvenær...?? og viti menn síðasta vaktin mín á þessum föstum vöktum er annað kvöld..

Ég fékk svona skrítna tilfiningu... þetta var eikkað svo óraunverulegt..! En ég er að losna frá þessum löngu vöktum.. og við erum að tala um það að í næstu viku s.s. fimmtudag - sunnudag þá geta algjöra ráðið því hvað ég geri við minn tíma... Sofið út.. farið að vinna hjá mömmu sem er nýja vinnan mín.. hér hafið þið það! Er komin með svona mini aukavinnu með skóla hjá Mömmu ehf. get stjórnað vöktunum mínum algjörlega... þær eru stuttar og ég get ákveðið hvaða daga ég mæti... :D En já aftur að næstu viku.. ég get eytt eins miklum tíma í námið og mér sýnist og ég veit ekki hvað... þetta er að gerast á besta tíma ever!

Fór aftur á móti til læknis í dag.. til að fá vottorð fyrir skólanum... hann segir að það sé frábært hjá mér að fara reglulega út að hlaupa og það hjálpi mér vissuleyti á þessum erfiðu tímum að halda geðheilsu...

Hitti Samma minn í dag og ræddi við hann stuttlega á meðan við tókum nokkra rúnta... vitnaði hann í soldið sem hanns sagði fyrir ári síðan.. Hann stakk uppá soldlu sem ég ætla að prufa.. ég ætla loksins að fara á ráðum hans frekar en annara til að mynda manneskju sem er ekki partur af lífi mínu í dag... Ég hefði kannski átt að hlusta betur á þann sem staldraði lengur við...! En já þegar allt er búið að róast þá ætla ég að taka status-check á tilverunni minni og meta það hvort ég ætti að prufa eins og einn eða tvo tíma.. kannsi það hjálpa mér eikkað...

Jájá svo í dag var annar fundurinn hjá lokhóp 2007!! Útskriftahópurinn minn!!

Þar er allt að fara að gerast og vonumst við til að ná vel saman og verða fyrirmyndar-útskriftarhópur...

Erum meiri segja komin með heimasíðu ~ www.123.is/lok2007

En já ég ætlaði víst að vera duhhleg í nótt að læra... Mjög líklega síðasta nóttin í langan tíma sem ég verð að læra... víííííí!!!!!

~ Looking At The Bright Side ~ ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 11:41:47 / hrefnaj

Ég reyni...

Ég reyni að vakna á morgnanna... og stundum hefst það... en stundum vakna ég í algjöru sjokki, búin að sofa af mér allan daginn og búin að eyðileggja allan fokking daginn minn!

Ég reyni að mæta í vinnu... sama hvort ég sé heil heilsu eða ei... ég vinn eins og maníak því ég hugsa með mér... æjjii ef ég hringji mig inn veika þá skapa ég vandræði og fólk fer að kannski að spyrja sig "Ætli hún sé veikkk??"

Ég reyni að hreyfa mig... því manni er sagt að það sé gott.. þá líka enda ég ekki eins og einhver spikfeit belja.. sem er jú mín versta matröð... En stundum á ég svo lítið eftir af orku minni að ég kem sjálfri mér ekki út...

Ég reyni að læra vel í skólanum... sem gengur nánast oftast eftir... nema allar þessar bevítans bækur.. hvernig er hægt að ætlast til þess að manneskja með dixlexíu nái að lesa trilljón bækur á nokkrum vikum.. Ég er dugleg en því miður ekki það dugleg..

Ég reyni að borga allar mínar skuldir... en það er svo margt búið að safnast saman... og það bætist alltaf meira og meira við.. T.d. hver fann upp stöðumælasektir...? Svo hitt og þetta sem maður er að berjast við að borga... Svo endar fyrsta vika mánaðarins að maður áttar sig á því að maður eyddi öllum mánaðarlaununum í skuldir og á lítið sem ekkert eftir handa sjálfum sér..

Ég reyni að taka til heima... en stundum hugsa ég með mér... ahhh.. þetta má bíða.. ég þarf að gera þetta, þetta og þetta...ég geri þetta á eftir og svo endar allt með því að ekkert hefst í því að taka til.... en ég reyni að taka til eins og ég get og tek út mín taka til köst...

Ég reyni að gera vinum mínum til geðs... maður er ýmist að hjálpa þeim með hitt og þetta... reyna að stússast í kringum þá.. ekki það að mér líki það ekki... svo kemur eikkað uppá og maður þarf einu sinni að taka failspor og maður fær ekkert nema bevítans vannþakklæti til baka...? Hvað með í staðin að hugsa "Hún gerði þetta ekki, sagðist ætla gera hitt" að hugsa með sér "Hmmm... hún gerði þetta ekki, ætli sé eikkað að, get eða gat ég gert eikkað sem vinkona til að hjálpa?"

Ég reyni að vera þessi fyrirmynd og þessi duglega stelpa... sem allir ætlast til að ég er.. en hafið þið aldrei hugsað útí það að ég er mannleg... það er ótrúlega margt á bakinu mínu.. þið hafið ekkert að gera að standa þarna útí horni og dæma mig! Þið vitið nákvæmlega ekkert EKKERT! Hvað á dag minn drífur....

Ég reyni að sleppa... en stundum er það erfitt.. mjög svo erfitt þá sérstaklega þegar maður hugsar til baka og ber það við núið... Ég kynntist því áður hvað erfiðleikar voru en núna, stundum, geng ég í gegnum daga sem eru bara hell.. dagar sem ég óskaði að ég hefði þetta gamla.. því hefði ég þetta gamla þá myndi ég kannski eiga auðveldara að komast í gegnum þetta... En maður getur ekki breytt fortíðinni...

Það sem ég er að reyna að segja.... ég er ekki búin að gleyma ykkur hinum.. þið eruð öll hérna í huga mínum og hjarta... ég vildi að allt gæti verið eins og það var.. að ég væri venjuleg.. en ég er það ekki...! Ég er að ganga í gegnum eikkað tímabil og ég hef ekki svör við þeirri spurningu "Hvað er í gangi?"... Ef ég hefði það svar þá myndi ég ekki vera hér að skrifa þetta blogg...  Ég vildi að ég gæti bara slappað af og andaði í nokkra daga.. en ef ég tek mér frí í einu þá þarf ég samt að hafa áhyggjur af öðru o.s.frv.

Mig hlakkar svoo mikið til að fara til Glasgow því sú ferð markar viss tímamót... þá er verð ég hætt á Victor... búin að lesa allar þessar bækur og vonandi nýjir tímar framundan.... og vonandi verður þá allt í lagi... Þess vegna er það ekki sóun á penningnum mínum að fara út... Það mun gera svo margt fyrir mig... Vonandi...


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 02:08:55 / hrefnaj

Magni & Dilana

Jáháá!! Maður er skohh' næstum orðlaus... Fékk gefins þessa tvo miða á tónleika Magna, Á Móti Sól og Dilönu :D Ákvað að bjóða Guðrúnu með mér... jæja fórum á þessa mögnuðu tónleika.. Í fyrstu virtist þeir ekkert magnaðir... svo bara búmm! Þetta var bara snilllddd!! Ég hef aldrei fílað Dilönu neitt vel í gegnum þættina... en eftir tónleikana þá er ég búin að sækja þó nokkuð af lögum með henniii... sem ég er aðð hlusta á í þessum töluðum orðum... ;)

Mánaðarmótin gegnin í garð og útborgunardagur í bráð :D vííí... vonandi fær maður eikkað gott útborgað... veit samt að næsta útborguninn kemur skohh rosalega vel út :D

Herru var svo að skoða kommentin hérna á síðunni minni... Þá sá ég komennt sem ég hafði ekki tekið eftir.. frá sæta gaurnum í BT... og ég tók ekki eftir því... eða var þetta sæti strákurinn í BT eða var þetta bara einhver af mínum brengluðu vinum að fokka í mér? Hmmmm....

Undafarna 3 sólahringa er ég búin að sofa 3 tíma... samtals!!! Þegar ég kom heim þá fann ég ekki vott af þreytur en núna þegar ég er komin af stað með að blogga þá eru augun mín orðin þreyttari... þannig.. ég bíst við því að ég fari að lognast útaf mun bráðar..

Allir að tjekka á Roxanne með Dilönu.. mmm... gott lag... enda er líka upprunnalega útgáfan, The Police, mergjuð.. þetta er svoo flott lag... Svo tekur Gorge Michell það líka nokkuð vel... :D

En já... zzzZZzZZZzzz... Me going making loving to mí bed :D ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 02:48:30 / hrefnaj

A Million Years

Caught up in what's in
Caught up in the things that everyone wants
Caught up in what's out
Caught up in the things that you could do without
Well what if I was one of them
And so I will say

If I live for a million years
I would be right there to catch your tears
Will you get over it this time
And is this the last time

On this night we breathe air
What makes it so different
What makes you not care
I wish that we could be the same
And I wish that you could give up this game
Don't want to be one of them
And so I will say

If I live for a million years
I would be right there to catch your tears
Will you get over it this time
If this is the last time

Will you say goodbye before you leave
Will you say goodnight
just one more time please
Will you call my phone out of regret
And will you love again
With other than me, Other than me
Will you speak of me with other than me
And will you remember me
And will you remember me
Will you remember me

If I live for a million years
I would be right there to catch your tears
Will you get over it this time
And is this the last time

Is this the last time
Oh, is this the last time, my dear
Oh, is this the last time
Yeah, is this the last time my, dear
Oh, is this the last time
Is this the last time, my dear
Is this the last time I
think it's the last time for us

Veit ekki afhverju en þetta lag hæfir þessu mómenti svo vel...

Jæja best að fara að sofa... svefntöflunar farna að tala sínu máli.. og ég er að lognast útaf...

Hörkudagur á morgun! Kokteilboð Símanns og ég komin með þetta flotta kokteil-vinnaí- föt... össs ég verð svaðaleg og þetta verður svaðalega gaman :D :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.09.2006 23:39:39 / hrefnaj

Lögin mín..

Eins og vinir mínir flestir vita er ég elska ég og dýrka tónlist útaf lífinu...

Það er svo margt sem hún gerir fyrir mig.. róar mig niður, hjálpar mér að hugsa, komast yfir reiðina, leiðbeinir mér... og svo margt annað sem ég ætla ekki að eyða tíma í að nefna hér.. en þið fattið hvert ég er að fara...

Tónlist geymir gamlar minningar sem ég vil halda í, textarnir segja margt sem ég get ekki komið útúr mér sjálf...

Einnig segir hún margt um mig og hvaða persónu ég hef að geyma..

Ég er með eitt lag á repeat þessa daganna.. Textin segir svo margt... ég leyfði mér að hagræða textanum aðeins.. og þið getið fundið hann hér..



What Goes Around.. Comes Around
 - Justin Timberlake

Þið verðið að ná í þetta lag það er bara magnað.. að mínu mati..

Hrefna sem er föst í fortíðinni.. :$


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 16:23:26 / hrefnaj

Það kemur stundum að því..

ég veit ekki hvað og hvað... ég missti bara alla stjórn á mér í gær og ranka við mig í dag.. átta mig á því að síðustu 12 tíma er ég búin að missa allt control... gjörsamlega!

Núna veit ég hvernig ykkur líður, þið þarna strákar... og ég biðst afsökunar...! Kemur einhver óábyrgur einstaklingur inní lífið mitt og er gjörsamlega búin að snúa því á hvolf... ég hef ekki tíma fyrir þetta... engan vegin.. ekki það sem viss manneskja  er að biðja um... úff hjálp! Mér finnst þessi manneskja vera svo háð mér að mér finnst ég vera að kafna...! *Anda Inn, Anda ÚT* Fyrir utan það er þetta dæmi ekki að fitta inní mitt líf...

Ég ber alveg virðingu fyrir þessum þessari manneskju, hún er frábær, yndisleg, skemmtileg og allt það.. og.. ehhh... oh my god hvað á ég að gera...??!

HJÁLLPPP!! Hvað er ég búin að koma mér í.


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.09.2006 23:26:25 / hrefnaj

Helgarblegar Belg...

Ekki notaði ég helgina til að kíkja á Hverfis-Helga enda var helgin mín bara fáranleg! *Ullabjakk* !

Á föstudaginn var ég sko nett þreytt enda kíkti ég á Victor á fimmtudagskvöldið til að fara að læra og hitti þar ekki minni mann en Sigga dyravörð sem var off-duty og var hann þarna með mörgum yngismeyjum.. var búin að læra af mér öllu viti og átti skilið 5 í fötu :P Begga og Bjarna join-uðu okkur og var auðvita kát á hjarla.. Fór svo bara heim að læra 8| En ekki hvað, lestrahesturinn ég! og var langt framm á nótt að læra... Mætti svo úber hress í skólann og brilleðari í þýsku-prófi.

Jæja átti að fá frí í vinnunni, vaktarskipti, þannig ég ákvað að ekki leggja mig heldur nota daginn vel, fór á bókasafnið, til skattstjórann, í tryggingamiðstöðina og kaupa föt fyrir visst tilefni. Jæja svo var ég búin að bóka mig á þennan stað um hálf 4, sem ég get ekki nefnt að svo stöddu en nánir vinir mínir vita hvað ég er að tala um, alla vega með það á hreinu að ég væri í fríi, svo allt í einu var frínu blásið af og svo aftur á og svo af enn eina ferðina enn.... getið ýmyndað ykkur hvað ég var pirruð! En þetta reddaðist á endanum og mætti ég glaðvösk á Victor um 8 leytið... víííí! Rotaðist um leið og ég kom heim eins og gefur að skilja.

Laugardaginn var ég að vinna allan daginn sem var allt í lagi, kvöldið mitt frekar massívt en ég var bara ein á efri hæðinni með 40 manna hóp í hlaðborð og fordrykk... íslendingar.. mmm... sem tíma ekki að kaupa neitt á barnum..  Eftir vinnu var valið á milli að fara í tvítugs afmæli Ólöfar eða í Keflavík... bjóst svo sem við því að vinkonur mínar væru orðnar ofurölvaðar og ég væri þess vegna engan vegin á sama leveli og þær.. þannig stefnan var tekin á Keflavík kvöldið byrjaði frekar slappt en svo fór maður niðrí bæ þar sem ég hitti skotann minn :D og var bara með honum allt kveldið og náttlega hitti einnig alla vitleysingana mína, Þórhall, Bjarna R., Dögg, Eyþór, Beggu! Þóru!! Kjána-dyravörðinn minn á H-punktinum og fleiri sem ég er að gleyma að nefna. Kvöldið endaði í lemjandi rigningu *hósst* og læti *hósst*.....

Vaknaði í morgun með verstu gervi-þynnku ever... æjjii þið fattið hvað ég meina.. hafið verið á djamminu langt fram á nótt án þess að hafa drukkið nema einn öllera og eruð bara ónýt.. fyrir utan þess bevítans rigningu sem hefur eflaust kallað fram gömlu pestina sem ég var með fyrir viku eða svo... Þannig ég var bara heima í litla kotinu mínu í dag.. mmmm.... fór svo til Örnu minnar í kvöld að vinna í félagsfræðiverkefni og litlu enskuverkefni... *duhh'legg* *klapp-klapp*

Núna er ég búin að vera í svo mikillri leti í allan dag að ég nenni ekki að fara sofa strax... ákvað að skella einu bloggi inn fyrir ykkur vitleysinganna ;) Svo er bara um að gera að skella sér í lestur á Njául eða einhverja af þessum milljón bækum sem ég á eftir að lesa í.... ZzzzzZZZzzzzzzz.... Ennn ný vika byrjar á morgun og verður hún í einu orði sagt kreiiissssííííí!!! 8|


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 02:57:58 / hrefnaj

- Það sem var og það sem á eftir að koma -

Hlustandi á Fix You með Coldplay ekki af því að Lukas tók það og vann þáttinn, heldur afþví þetta lag tilheyrir hjarta mínu að vissu leyti...

Búin að hugsa um árið sem er að líða... já mér finnst mjög svo stutt eftir af því...

Þetta ár er búið að vera þvílíkur rússíbani....! Skil ekki hvernig ég hef meikað þetta allt saman.. Ákvað því mér leiðist og ég nenni ekki að fara að sofa að taka smá útekt á fyrstu 9 mánuðum ársins.

Janúar - Var mér frekar erfður, átti erfitt með að sætta mig við ákvörðun mína um að flytja vestur en tók einn dag í einu og það hafðist með því hugarfari að eftir nokkrar vikur myndi ég snúa til baka í hreiðrið mitt. Varð ástfanginn og upplifaði soldið sem ég hafði sjaldan upplifað áður, strákur sem elskaði mig og dýrkaði mig jafn mikið og ég gerði gagnvart honum. Án hans hefði ég aldrei getað komist í gegnum þetta allt.

Febrúar - Fór útí óvissuna og viti menn skemmtilegast lífreynsla hingað til! Ég var svooo ligeglad! ;) Eyddi alltof miklum penningum. En fyrst og fremmst fékk svar við spurningu sem ég hafði lengi velt fyrir mér... Eigum við Sven samleið? Var ég á leiðinni að flytja til Þýskalands á næstunni.. Svar... Nei... en ég fékk að upplifa svo margt nýtt og endurnýja vinarbönd mín við margar gamla vini mína að þetta var svooo þess virði.. Sé ekki eftir neinu! Missti það sem mér var hvað kærast.

Mars - Mánuður óvissunar... Átti ég að fara aftur suður... hvað beið mín fyrir sunnan nema slæmar minningar. Var ekki sátt við sjálfa mig og sá enga ástæðu til að snúa aftur. Vann eins og meiníak... missti allt control á fjarnáminu... vissi að ég væri að fokka þessu upp.

Apríl - Fór suður í fyrsta skipti eftir missin mikla... Eitt af því erfiðasta sem ég hef gert á ævi minni face þetta allt því núna var þetta partur af fortíð minni. Byrjaði að tala við vissan vitleysingin.. sem fékk mig til að sjá vonina á ný... ákvað að flytja suður.. í bæjinn... ó bojj!

Maí - Byrjunin á sumrinu miklu... öll djömmin með henni Maríu minni... My name is Jósefína Baker! Hahahah! Kom mér vel fyrir á victor og líkaði það vel :) Gosbrunna-djammið mikla! María: Hvað er svona fyndið við þetta?! Akkurat EKKERT!

Júní - Djamm Djamm Djamm! Vinna Vinna og Vinna! "Hæææ hva heitiru, Bless!" Djammið okkar Maríu!

Júlí - Komst að því að ég væri að missa hana Maríu mína frá mér... I was a selfish bitch! Fann mér tvo vitleysinga til að leigja með.. Meira Djamm! Kveðjupartýið mikla og jáá þið þarna vitleysingar...! Meiri hlutinn ykkar skuldar mér enþá 1000 kallinn og já ég þurfti að borga allt vínið! Setti sjálfa mig big time á hausinn! Urrr...

Ágúst - Helga-Helgin okkar Maríu!!! Ég sakna Hverfis-Helga! Setja þá á To-Do list að kíkja á hann um helgina ;) Kjána-djammið okkar Maríu þar sem við fórum á Vegamót á Orkuveitu-Djamm...."Haaa jáá...! Ég vinn við að lesa af mælum sko!" María flutti burt af klakanum. Skólin byrjaði á ný víííí! Fékk þær frábæru fréttir að ég er að fara að útskrifast í vor en meira vííííí! Menningarnótt sem var bara kreiiisssííí en samt svo glötuð! Áttaði mig loksins á því að ég hafði eytt öllu sumrinu í einhverja bevítans vitleysu, talandi um að henda sjálfri sér fyrir framan strætó.. just meant to happend. En ég er svo vön öllu svona að ég var ekki lengi að rífa mig uppúr þessu. - Bjarni - Hvaaa átti ég bara að bíða nakinn eða hva??? híhíhí....! Limmósían!

September - Bryndís Eva yfirgaf okkur :'( Kynntist lögfræðingnum :D Annað sem þarf að setja á To-Do lista.. Skrifa honum póst! Heldi mér útí madness og sökkti sjálfri mér í nám og vinnu... sjæse... Kynntist Denis... nýja sæta dananum mínum :D Held áfram að styrkja vinaböndin við stelpurnar mínar sem eru með mér í skólanum þær eru bara æðislegar og geta ekki gert sé grein fyrir því hvað þær eru að hjálpa mér mikið bara með því að vera þarna í skólanum.. Luv Ja! Sammi kjánaprik komin í bæjinn og með skvísuna hans í skóla bara foréttindi að eiga þau að... má segja að þau séu svona hin fjöldskyldan mín :D Ljósanótt - One Another Mission Wich Was Done To Fall! Nýji strákurinn.

Niðurstaða...

  • Er mjög sátt með allt þrátt fyrir allt. Ég bý með 2 yndislegum stúlkum.
  • Ég er alltaf að átta mig á því hvað ég á marga frábæra vini.
  • HÍ 2006/2007 !!!!
  • Ég er þrusugóður þjónn!
  • Auk þess superwoman!
  • Og ég er skotin og elska það að fá að upplifa á ný þennan rússíbana... þessa óvissu... en ég er ekkert að fara neitt og ætla bara njóta þennan rússíbana.

Yet To Be Done

  • Innflutningspartýið!
  • Glasgow-ferðin!
  • Brillera í skólanum.
  • World Class kortið mitt.
  • Næla mér í strákinn ;)
  • Njóta lífsins enn meira.

~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~

Coldplay - Fix You

When you try your best but you don't succeed
When you get what you want but not what you need
When you feel so tired but you can't sleep
Stuck in reverse

And the tears come streaming down your face
When you lose something you can't replace
When you love someone but it goes to waste
Could it be worse?

Lights will guide you home
And ignite your bones
And I will try to fix you

And high up above or down below
When you're too in love to let it go
But if you never try you'll never know
Just what you're worth

Lights will guide you home
And ignite your bones
And I will try to fix you

Tears stream down your face
when you lose something you cannot replace
Tears stream down your face
And I

Tears stream down your face
I promise you I will learn from my mistakes
Tears stream down your face
And I

Lights will guide you home
And ignite your bones
And I will try to fix you

» 9 hafa sagt sína skoðun

09.09.2006 03:40:45 / hrefnaj

Bloggerí Blogg

Jæja er ekki tími á blogg...?

Er barasta að reyna að koma öllu á gott ról sambandi við skólann og vinnu... það gengur sovna upp og niður... sérstaklega þegar ég er að vinna fram á nóttina sem e´g geri flest öll virk kvöld sem ég vinn... Fæ voða lítið svigrúm frá vinnunni hvað skólann varðar... En þetta reddast á edanum...

Það styttist enn meira að við förum út... hlakkar geiðviekt til og sakna Maríu endalaust...!!

Ég er hætt öllu vonlausu strákastandi og komin með auga á þennan strák sem er bara yndislegur... mmmmjááá... þetta er allt bara work in progress kannski verður ekkert úr þessu en kannski verður eikkað úr þessu... aðeins tíminn getur skorið úr um það... ;)

En jáá já skrapp aðeins út í kveld.. ekkert langt, bara niðrí vinnu.... þar sem ég hitti nokkra velvalda vestfirðinga... svo skildu þeir við mig því þeir þurftu að mæta í vinnu snemma um morguninn... þjóskaðist til að vera þarna áfram og lenti á spjalli við þessa tvo stráka sem eru fastakúnnar hjá ekkert... ekkert skemmtilegt.. þannig ég fór bara heim... kalt á tálsunum og þrái mína rómantísku stund með rúmminu mínu :D

Alla vega góða nótt... vona að þið hafið átt betra kvöld en ég,....

Heyyyy svo allir á Skímóball á morgun!!!! Ójááá! ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 01:32:07 / hrefnaj

Bloggerí Blogg!

Jájá það er nú meira búið verið að væla yfir því að ég sé ekki búin að blogga neitt undanfarið..

En hér kemur bloggið!...

Ég er búin að kaupa tölvu, alveg splunkunýja fartölvu!  Hún er æðisleg! Reyndar gleymdu strákarnir í BT að láta mig hafa einhverja fríja bíómiða og tölvuleik... Svooo var talvan 80 gb en ekki 100 gb....

Ég fór með Örnu niðrí BT og náði tali af einum starfsmanninum, sem var nokkuð sætur, og ræddi við hann um þessi klúður... Bauð hann mér hitt og þetta sem mér leist missjafnlega vel á en mér leist best á að fá að velja mér dvd-combó-pakka...

Tók soldið langan tíma að velja en svo loksins fann ég það sem ég vildi.. Grays Anatomy seríu 1 og Little Britain sería 1 & 2... pakki uppá 10 þúsund kall... víííí..! Enda er ég búin að vera að horfa á Little Britain undafarna daga.... elska þessa þætti!!!!! :D

En já gaurinn fer með mér á kassann og segir við stúlkuna á kassanum að það eigi að vera 100% afsláttur á þessu hjá mér.. og stelpan lítur á strákinn og svo á mig og segir "100% afsláttur.. ahhhh...." og gaurinn bara "neiii sko ekki misskilja ég þekki hana ekki" og þá svara ég um leið "Jebb alveg satt við þekkjumst ekki... ég er ekki einu sinni að sofa hjá honum!" veit ekki hver gaurinn ætlaði hann fór svo fram hjá sér... hehehe ekkert smá fyndið en við héldum áfram að spjalla og eikkað smá daður en ekkert meira.... ;) En þetta var gaman..!

Svo náði ég að prútta út góðum afslætti á geiðveikri Nike afslætti í Útilíf...

Skólin er komin á fullt og er ég ánægð með allt nema þennan ömurlega stærðfræði kennara sem ég er með...! Er í 16 ein í dagskóla og svo 6 í fjarrnámi þannig það verður strembin vetur....

Þrátt fyrir skólann og allt það þá erum við Guðrún að fara út 2.nóvember.... jebbb það er búið að negla niður daginn.... 62 dagar!!!! Frekar flókin ferð hjá okkur... okkur langar til London líka.. þannig við fljúgum út til London 2.nóvember, 3.nóvember fljúgum við til Glasgow, morguninn 7.nóvember fljúgum við aftur til Londons og svo seinnipartinn fljúgum við heim til Íslands! Víííííí.... þannig nú verður maður að fara að leggja fyrir smátt og smátt.... Frekar samt heppin.. fjölskyldan er að fara út eftir 2 vikur til Berlínar og ferðast þar í kring og ég fékk að velja um að fara með þeim eða þau borga uppí Glasgowferðina mína....

Hvaaa get ég sagt meira...

Júúúú innifluttningpartýið verður mjög líklega fyrstu helgina í október en það á eftir að ákveða það betur og við látum ykkur vita þegar að því kemur...

og svoo er Ljósanótt um helgina.. vííííí... við Sammi ætlum saman í víkina á laugardaginn og svo seinna um kvöldið kemur í Signý og svo mun ég hitti Þóru þegar hún er búin að vinna og auðvita verður gerður eikker skandall! ;) en mér hlakkar voða tilll.....! Fékk frí spes fyrir Ljósanótt... víííí!!!

En er ekki málið að ég fari í háttinn svo maður vakni í fyrramálið og geti mætt í þýsku 103 - 203 og svo er maður bara búin í skólanum og kominní helgarfrí!!!! Jeyyyy :D

Að lokum þá langaði mig að segja ykkur að það er frábært að vera komin í skóla með stelpunum, fá að hitta þær og eyða meiri tíma með þeim.. Ég elska þærrr!!! Bara ef María væri með okkur....

Bráðum þá verðum við þarna 3 saman á Buffalo Joe's vel skrautlegar... jíhaaaa!!! ;)

En já góða nótt allir saman....


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 20:39:00 / hrefnaj

Nú fer að styttast..

 í helgina.... já og djammfíllingurinn orðin gífurlegur....

Það vantar samt eitt... Maríuuuu!!!

Þess vegna ákvað ég að stela þessari mynd frá henni...

María og einn af Helgum helgahelgarinnar okkar... Eflaust sá skemmtilegasti þetta kvöld..

María ég sakna hannsss!!! Vil ekki vera plebbi og fara ein á Hverfist til að hittann... þannig þú verður að koma heim! Svo við getum farið að hittann!!!! :D :D Hva segiru um það?

En ég ætla að blogga aftur í dag.. búin að eiga yndislegan dag þrátt fyrir slappleikann minn mikla.... Bloggerí Blogg!! ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 27
Strákarnir